Hey verð að koma því að ég var að útskrifast á laugardaginn 24
júní. Þetta var bara hin skemmtilegasta athöfn alla vega fyrir mig
en veit ekki hvað Elínu og Þorleifi fannst. Mætti um kl. 9 og
athöfnin var lokið um 12. Mér fannst nú rektorinn vera frekar
neikvæður í tali og ekki beint viðeigandi að þvaðra um lenginu
námsins eins og það væri hundómerkilegt að kennaranám væri
bara 3 ár (eins og það er í dag) en ekki 4 (eins og
stefnt er að). En dagurinn var fínn, fórum út að borða í hádeginu,
kíktum í nokkrar búðir og fórum svo heim, skiptum um föt og fórum
niður á íþróttavöll til að fylgjast með frumburðinum
spila fótbolta. Það var nefnilega fótboltamót hér í bæ
þannig að Hjalti sá ekki mömmu sína útskrifast (og svei mér ef
honum var ekki alveg sama). En Hjalti minn stóð sig eins og hetja
og allir í hans liði. Þeir uppskáru eins og þeir sáðu
og enduðu í fyrsta sæti þessar elskur..
Settumst svo niður um kvöldið og fengum okkur köku og
rauðvínsglas. Það var bara mjög huggulegt
Nokkrir komu og
heilsuðu upp á okkur og það var mjög gaman.
Annað það er að ég fæ afhent íbúðina núna 5. júlí og hlakka
geðveikt til. Fer í frí 8. júlí og það verður bara gaman. Það
versta er að ég þarf að afhenda mína 15 júlí og þess vegna er ég
eiginlega komin í pappakassa núna. Þurfti meira að segja að fá
lánaða vasa hjá nágrönnum undir blómin sem ég fékk á
útskriftadaginn.Innréttingar koma 3 júlí til landsins þannig að
Erna hefur nóg að gera við að afgreiða okkur þessa dagana.
Hef frétt það að Hildur og fjölskylda sé stödd á skerinu enda
rignir. ER viss um að það fylgi henni. NEi Hildur mín djók.
Er barnlaus og huggulegt enda finnst mér kvöldið vera búið að
vera hundlengi að líða engin að trufla mig, kalla á mig og ég bara
í mínu heimi. Æi það er voða huggulegt svona einstaka sinnum.
Ormarnir eru hjá mömmu og pabba, Hjalti ætlar að ríða með pabba frá
Hólminum til Bíldhóls núna í vikunni og Elín ætlar að skottast með.
S.s bara Þorleifur sem truflar mig þessa stundina.
Af bústaðnum er allt gott að frétta. Ýmislegt búið en marg
eftir. Auglýsi hér með eftir rafmagspotti og hef til sölu
hitaveitupott. Sko ég er að sjálfsögðu að tala um heitan pott ekki
djúpsteikingar eða sláturpott þó það verði óttalegt slátur sem eigi
eftir að fara í pottinn.
Leikskólakennarinn kveður að sinni. Farið vel með ykkur
Guðbjörg